Fotbolti.net
13.06.26 - 18:08
Gylfi Már Þórðarson

Tristan - Það eru hlutir sagðir uppí stúku sem eru ógeðslegir

Auglýsing
Tristan Freyr skoraði í dag

Tristan Freyr skoraði í dag

Canon

Mynd: Grótta

Mjólkurbikarinn
Tristan Freyr Ingólfsson átti góðan leik þegar Gróttumenn féllu úr Mjólkurbikarnum gegn Fylki eftir 4-2 tap í framlengdum leik. Tristan skoraði fyrsta mark leiksins og fagnaði með því að hlaupa að stuðningsmönnum Fylkis sem hann sagði að hefðu látið ljót orð um hann falla.
"Ég ætla ekki að fara út í það en það eru hlutir sagðir uppi í stúku sem eru ógeðslegir. Þetta er algjörlega út úr korti en ég ætla ekki að fara út í smáatriði hér." sagði Tristan

"Leikurinn var mjög jafn, við vorum flottir og þeir líka. Þetta var rosalega svekkjandi, algjör 50/50 leikur. Það er smá einbeitingarleysi [sem ræður úrslitum], nokkur föst leikatriði, óheppni og svona er þetta. Þetta er bikarinn, það er allt undir, menn taka sénsa og geta gleymt sér."


Allt viðtalið við Tristan má finna í spilaranum hérna fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.