13.07.04 - 08:08
Hafliði Breiðfjörð
Carew seldur til Besiktas (Staðfest)




Spænska félagið Valencia tilkynnti í gærkvöld að þeir hafi náð samkomulagi um að selja norska landsliðsmanninn John Carew til Besiktas í Tyrklandi. Ekki var farið nánar í smáatriði en spænskir fjölmiðlar sögðu að Carew sem er 24 ára gamall hafi gert þriggja ára samning við Besiktas. Carew lék alla síðustu leiktíð á láni hjá Roma á Ítalíu.
Fyrr um daginn hafði Claudio Ranieri stjóri Valencia sagt að Carew væri ekki í framtíðarplönum sínum. Carew var einnig orðaður við WBA, liði Lárusar Orra Sigurðssonar sem er komið í úrvalsdeildina á ný.
Vicente del Bosque fyrrum þjálfari Real Madrid stjórnar Besiktast á næstu leiktíð en liðið endaði í þriðja sæti tyrkensku deildarinnar á síðustu leiktíð.
Vicente del Bosque fyrrum þjálfari Real Madrid stjórnar Besiktast á næstu leiktíð en liðið endaði í þriðja sæti tyrkensku deildarinnar á síðustu leiktíð.
