Fotbolti.net
13.07.26 - 13:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Andrey Santos til Man Utd (Staðfest)

Andrey Santos til Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Man Utd

Brasilíski miðjumaðurinn Andrey Santos (22) er genginn í raðir Manchester United en hann er keyptur á 50 milljónir punda frá Chelsea.

United greiðir Chelsea 48 milljónir punda og getur upphæðin hækkað um tvær milljónir til viðbótar.
Andrey Santos stóðst læknisskoðun í Manchester
TENGT EFNI

Andrey Santos stóðst læknisskoðun í Manchester

Hann skrifar undir samning til 2031 með möguleika á árs framlengingu.

Hann kom við sögu í 43 leikjum með Chelsea í fyrra og var sá miðjumaður af þeim sem eru yngri en 22 ára sem átti flestar sendingar fram á við í deildinni að meðaltali í leik.

Hann verður í treyju númer 17 hjá Man Utd. Alejandro Garnacho, núverandi leikmaður Chelsea, var sá síðasti til að vera númer 17 hjá United.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.