Fotbolti.net
13.07.26 - 21:28
Brynjar Ingi Erluson

Greenwood á leið til Fenerbahce - Fær 10 milljónir evra í árslaun

Greenwood á leið til Fenerbahce - Fær 10 milljónir evra í árslaun
Canon

Mynd: EPA

Enski sóknarmaðurinn Mason Greenwood er að ganga til liðs við tyrkneska félagið Fenerbahce en hann kemur til félagsins frá Marseille í Frakklandi.
Fenerbahce greiðir Marseille um 42 milljónir evra fyrir Greenwood og Manchester United, fyrrum félag Englendingsins, fær 10 milljónir evra í sinn hlut.

Samkomulag milli Fenerbahce og Marseille náðist í kvöld og Greenwood er nú á leið í læknisskoðun áður en hann skrifar undir.

Samningur hans við Fenerbahce verður til fjögurra ára og mun hann þéna 10 milljónir evra í árslaun.

Greenwood er 24 ára gamall og hefur verið besti leikmaður Marseille síðustu tvö ár.

Á þeim tíma kom hann að 65 mörkum í 81 leik í öllum keppnum, en áður hafði hann spilað með Getafe á Spáni og Manchester United á Englandi.

Hann á einn A-landsleik að baki fyrir England, gegn Íslandi í Þjóðadeildinni árið 2020.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.