Fotbolti.net
13.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Juve kaupir liðsfélaga Mikaels (Staðfest)

Juve kaupir liðsfélaga Mikaels (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Juventus hefur fest kaup á framherjanum efnilega Jeff Ekhator sem kemur úr röðum Genoa.
Ekhator er 19 ára Ítali, ættaður frá Nígeríu, með fimm mörk í sautján leikjum fyrir unglingalandsliðin og hefur komið við sögu í einum leik með A-landsliðinu.

Hann skoraði 4 mörk í 32 leikjum með Genoa á síðustu leiktíð þar sem hann kom nánast alltaf inn af bekknum.

Ekhator gerir fimm ára samning við Juventus sem borgar 16 milljónir evra til að festa kaup á honum. Stórveldið gæti greitt 2 milljónir til viðbótar í árangurstengdar aukagreiðslur auk þess sem Genoa heldur um 20% af endursöluvirði leikmannsins.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.