Fotbolti.net
13.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Leeds bætist við kappið um landsliðsmann Bosníu

Leeds bætist við kappið um landsliðsmann Bosníu
Canon

Mynd: EPA

Leeds United hefur bæst við spennandi kapphlaup um miðvörðinn Tarek Muharemovic, sem lék með Bosníu á heimsmeistaramótinu og er samningsbundinn Sassuolo á Ítalíu.
Þessir gætu nýtt HM sem stökkpall að stærra félagi
TENGT EFNI

Þessir gætu nýtt HM sem stökkpall að stærra félagi

Muharemovic er 23 ára gamall og hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hlekkur í áhugaverðu liði Sassuolo sem gerði flotta hluti í endurkomu sinni í Serie A deildina.

Bournemouth og Sunderland hafa bæði sett sig í samband við Sassuolo en ítalska stórveldið Juventus er talið vera með endurkaupsrétt á leikmanninum auk 50% endursöluákvæðis.

Sassuolo vill fá 40 milljónir evra fyrir miðvörðinn sinn og því myndi Juve fá rétt tæpar 20 milljónir í sinn hlut.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.