Fotbolti.net
13.07.26 - 22:40
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool gefur Slot grænt ljós

Liverpool gefur Slot grænt ljós
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur greitt götu Arne Slot að hollenska landsliðinu. Hollenski miðillinn Telegraaf greinir frá þessu.
Slot var rekinn frá Liverpool eftir síðasta tímabil, en hann átti þá eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Liverpool heldur því áfram að greiða honum laun út samningstímann. Talið er að hann eigi rétt á rúmlega tíu milljónum evra fyrir það ár sem eftir stendur.

Slíkt getur jafnan flækt málin þegar þjálfari vill taka við öðru félagi eða landsliði. Slot er sagður efstur á óskalista hollenska knattspyrnusambandsins í leitinni að nýjum landsliðsþjálfara, en Ronald Koeman lét af störfum eftir heimsmeistaramótið.

Telegraaf segir Liverpool reiðubúið að koma til móts við Slot og greiða upp í laun hans á fyrsta ári hjá hollenska sambandinu. Með því yrðu heildarlaun hans sambærileg þeim sem hann fékk hjá Liverpool.

Liverpool myndi um leið spara sér fjármuni þar sem hollenska sambandið tæki að sér að greiða hluta launanna.

Enska félagið er sagt vilja greiða götu Slot í starfið vegna þess hversu fagmannlega hann tók á brottrekstrinum. Þá hafi það einnig vægi að hann stýrði Liverpool til sigurs í ensku úrvalsdeildinni á sínu fyrsta tímabili á Englandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.