Fotbolti.net
13.07.26 - 20:49
Brynjar Ingi Erluson

Slaven Bilic tekur aftur við króatíska landsliðinu (Staðfest)

Slaven Bilic tekur aftur við króatíska landsliðinu (Staðfest)
Canon

Mynd: Króatíska fótboltasambandið

Slaven Bilic er tekinn aftur við króatíska landsliðinu en hann tekur við af Zlatko Dalic sem hætti eftir að samingur hans við fótboltasambandið rann út.
Dalic náði eftirtektarverðum árangri með króatíska landsliðið. Hann kom liðinu í úrslitaleik HM árið 2018 og í 8-liða úrslit á HM 2022, en í ár féll Króatía úr leik í 32-liða úrslitum.

Samningur hans rann út eftir mótið og ákvað hann að sækjast ekki eftir því að halda áfram. Dalic róar því á önnur mið.

Framkvæmdanefnd króatíska fótboltasambandsins var einróma í ákvörðun sinni um nýjan þjálfara og Bilic hefur verið ráðinn í annað sinn.

Bilic þjálfaði landsliðið frá 2006 til 2012, en hefur einnig stýrt ensku liðunum West Ham, WBA og Watford. Þá hefur hann þjálfað Al Ittihad og Al Fateh í Sádi-Arabíu.

Bilic er í miklum metum í Króatíu og er sá landsliðsþjálfari sem hefur hæsta sigurhlutfallið í sögu liðsins. Hann vann 42 af þeim 65 leikjum sem hann stýrði Króatíu í, en náði hins vegar ekki að koma liðinu langt á stórmótum.

Besti árangurinn undir hans stjórn var 8-liða úrslit á EM 2008, en honum var hins vegar hrósað í hástert þegar hann hætti fjórum árum síðar fyrir að yfirgefa liðið á góðum nótum og fyrir að koma því á hærri stall.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.