Fotbolti.net
13.07.26 - 17:51
Brynjar Ingi Erluson

Vålerenga kaupir Fanneyju (Staðfest)

Fanney Inga er farin til Vålerenga

Fanney Inga er farin til Vålerenga

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir er gengin í raðir norska félagsins Vålerenga frá Svíþjóðarmeisturum Häcken.
Fanney Inga, sem er 21 árs gömul, gekk til liðs við Häcken á síðasta ári og varð sænskur meistari með liðinu á sínu fyrsta tímabili.

Þá vann hún Evrópubikarinn með Häcken fyrr á þessu ári, í fyrsta sinn í sögu félagsins. Alls spilaði Fanney 34 leiki með liðinu á þessu eina og hálfa ári sem hún eyddi þar, en Häcken hefur nú selt hana til Vålerenga í Noregi.

„Ég myndi segja að tími minn hjá Häcken hafi verið lærdómsríkur. Ég hef tekið miklum framförum, bæði innan vallar og utan.“

„Það hefur verið erfitt en á sama tíma skemmtilegt að flytja frá fjölskyldunni og til nýs lands. Ég hef skapað sterk sambönd hér og þetta er eins og önnur fjölskylda.“

„Við höfum byggt upp sterkt umhverfi og góðan liðsanda. Umhverfi þar sem gerðar eru miklar kröfur, en leikmenn fá einnig frelsi til að taka áhættu og vera hugrakkar. Það er stór ástæða fyrir minni þróun og árangri liðsins á vellinum.“

„Uppáhaldsminning mín með Häcken var þegar við unnum Evrópubikarinn. Við urðum fyrsta liðið til að vinna keppnina og að gera það á heimavelli fyrir framan stuðningsmennina var magnað,“
sagði Fanney.

Hún fer ekki í síðra lið. Vålerenga er eitt sigursælasta lið Noregs og þar hittir hún landsliðskonurnar Örnu Eiríksdóttur og Sædísi Rún Heiðarsdóttur.

„Vålerenga er sögufrægt félag á Norðurlöndunum og ég hlakka til að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum og komast aftur á toppinn,“ sagði hún enn fremur.

Vålerenga er í 4. sæti norsku deildarinnar með 19 stig, þrettán stigum frá toppnum. Liðið er ríkjandi bikarmeistari, en það hefur unnið bikarinn fjórum sinnum frá árinu 2020.

Þá er Vålerenga í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið mætir sænska liðinu Malmö.


Vålerenga kaupir Fanneyju (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.