Fotbolti.net
13.08.04 - 12:14

Vieira fer ekkert (Staðfest)

<b>Vieira fer ekkert (Staðfest)</b>
Canon
Núna er það loksins komið á hreint hvar Patrick Vieira, fyrirliði Englandsmeistara Arsenal verður á næsta tímabili. Hann mun verða um kyrrt í herbúðum Arsnel en hann hefur eins og flestir vita verið orðaður við Real Madrid á nánast hverjum degi í allt sumar. Talið var líklegt að hann myndi fara til Real fyrir 23 milljónir punda en hann vildi ekki fara frá Arsenal.

Arsene Wenger hafði gefið Vieira fram á sunnudag til að gera upp hug sinn og hann hefur núna sagt Arsenal þar sem þeir vilja heyra; að hann verði áfram hjá félaginu.
Real Madrid eru einnig taldir hafa hætt við vegna þess að Arsenal, vildu fá meira fyrir leikmanninn á seinustu stundu en Real voru ekki tilbúnir að borga þá upphæð.

Í stuttri yfirlýsingu frá Vieira segir: ”Tengsl mín við Arsenal eru það sterk að ég vil ekki slíta þeim. Ég verð áfram hjá félaginu. Ég er stoltur af því að vera fyrirliði félagsins og hlakka til að vinna titla með félaginu.”

Arsenal gáfu einnig út yfirlýsingu en í henni segir m.a.: ”Félagið er að sjálfsögðu himinlifandi með það að Patrick Vieira skuli hafa ákveðið að vera áfram hjá Arsenal. Við viljum auðvitað ekki selja okkar bestu leikmenn en Arsene Wenger hefur hér sanfnað saman hóp af frábærum leikmönnum og það er markmið okkar að vinna alla þá stóru titla sem í boði eru. Patrick er mikilvægur hltui liðsins og því var ljóst að ef við ætluðum okkur að ná þessu markmiði þá yrðum við að hafa hann áfram hjá félaginu.

Að lokum viljum við koma því á framfæri að Rela Madrid, þrátt fyrir allar sögusagnir, fóru eftir öllum settum reglum í sambandi við hugsanlega brottför Vieira.”


Núna er talið mjög líklegt Real reyni allt hvað þeir geti til þess að fá Michael Owen til liðs við sig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.