Bakvörður með yfir 100 leiki í Eredivisie kominn í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Stjarnan

Mynd: Stjarnan
Damil Dankerlui er genginn í raðir Stjörnunnar, hann er þriðji leikmaðurinn sem Stjarnan tilkynnir í dag, á þessum lokadegi félagaskiptagluggans.
Damil er 28 ára hægri bakvörður sem á 135 leiki í efstu deild Hollands, Eredivisie. Þar lék hann með Ajax, Willem II og Groningen. Hann hefur einnig spilað í Grikklandi og síðast lék hann með Almere í hollensku B-deildinni.
Í tilkynningu Stjörnunnar er Damil lýst sem hröðum og öflugum varnarmanni með mikla reynslu gegn sterkustu sóknarmönnum Hollands.

TENGT EFNI
Stjarnan fær tvo landsliðsmenn Síerra Leóne (Staðfest)
„Damil er einnig landsliðsmaður fyrir Surinam og hefur tekið þátt í undankeppni HM og Gold Cup.
Við bjóðum Damil velkominn og hlökkum til þess að sjá hann í bláu treyjunni!" segir í tilkynningu Stjörnunnar.