Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 14. janúar 2022 18:56
Victor Pálsson
Ákvörðun sem stuðningsmenn Liverpool myndu aldrei fyrirgefa
Mynd: EPA
Jamie Carragher, goðsögn Liverpool, segir að eigendum liðsins yrði ekki fyrirgefið fyrir að losa Mohamed Salah í sumar eða árið eftir er samningur hans rennur út.

Salah hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning á Anfield en hann verður samningslaus 2023 og gæti rætt við önnur félög eftir ár.

Salah er einn allra mikilvægasti ef ekki mikilvægasti leikmaður Liverpool en illa hefur gengið að fá hann til að skrifa undir framlengingu.

„Þeirra er auðvitað sárt saknað og nú verður örugglega enn meira talað um samningamál Salah þar sem hann er ekki á staðnum," sagði Carragher um Salah og Sadio Mane sem eru í Afríkukeppninni þessa stundina.

„Sem stuðningsmaður Liverpool þá sérðu að þetta er að taka sinn tíma. Aðrir lykilmenn Liverpool hafa skrifað undir samninga á síðustu þremur eða fjórum mánuðum."

„Salah vill fá eins vel borgað og aðrir toppleikmenn í úrvalsdeildinni og í heiminum og af hverju ekki? Hann á það skilið, við erum að tala um einn besta leikmann heims."

„Vandamál Liverpool er að hvert myndi Salah fara? Real Madrid og Barcelona koma í raun ekki til greina fjárhagslega. Myndi hann eyðileggja orðspor sitt og fara til Manchester City eða Manchester United? Örugglega ekki."

„Þetta snýst ekki um að gefa leikmanninnum nákvæmlega það sem hann vill en ég held að eigendunum og knattspyrnufélaginu yrði ekki fyrirgefið ef Salah fer í sumar eða eftir 18 mánuði."
Athugasemdir
banner
banner