Fotbolti.net
14.03.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Albert til Færeyja. (Staðfest)

Samkvæmt Morgunblaðinu í morgun hefur Albert Sævarsson, markvörður knattspyrnuliðs Grindvíkinga til margra ára, gengið til liðs við færeyska félagið B68 frá Tóftum og hyggst leika með því næstu tvö árin.
Albert hefur dvalið í Færeyjum undanfarnar vikur og leikið með liðinu á undirbúningstímabilinu og að sögn Ingvars Guðjónssonar, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Grindavíkur, bera forráðamenn færeyska liðsins mikið lof á frammistöðu Alberts.
Albert er 29 ára og hefur verið aðalmarkvörður Grindvíkinga frá fyrsta ári þeirra í efstu deild, 1995. Hann er leikjahæsti leikmaður félagsins í deildinni með 133 leiki og þar af lék hann 121 í röð, allt frá sínum fyrsta leik og þar til hann missti af byrjun síðasta Íslandsmóts vegna meiðsla.

B68 varð í sjötta sæti færeysku deildarinnar á síðasta ári. Félagið hefur þrívegis orðið færeyskur meistari, síðast árið 1992. Heimavöllur félagsins, Svangaskarð, var til skamms tíma eini grasvöllurinn í Færeyjum og þar hafa Færeyingar leikið flesta landsleiki sína eftir að þeir byrjuðu að spila á heimavelli í alþjóðlegum mótum. En allt þetta kom fram í Morgunblaðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.