Harry Kane mun aðeins eiga ár eftir af samningi sínum hjá Tottenham þegar sumarið gengur í garð.
Háværar sögur heyrast nú um að mikill eltingarleikur verði um enska landsliðsfyrirliðann í sumar.
Manchester United er eitt af þeim félögum sem helst hefur verið nefnt í tengslum við Kane en samkvæmt ESPN þá ætlar United að forðast það að fara í viðræður við Spurs.
Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, er hrein martröð í viðræðum og United ætlar að forðast það að ræða við hann um kaupverð á Kane.
Félagið ætlar þess í stað að horfa á Dusan Vlahovic, sóknarmann Juventus, og Victor Osimhen, sóknarmann Napoli, í leit sinni að níu í sumar.
Tottenham ætlar augljóslega að gera allt til að halda Kane og verður settur stór verðmiði á hann í sumar.
Athugasemdir