16.09.26 - 15:19
Kári Snorrason
Valinn í fyrsta sinn í þrjú ár - „Skynjaði að hugur hans vildi koma“

Varamarkvörður FCK.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Opinberaði landsliðshóp sinn í hádeginu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Ari hefur verið þriðji markvörður landsliðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Varamarkvörður FCK.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Arnar Gunnlaugsson opinberaði í hádeginu landsliðshóp sinn sem mætir Eistlandi, Lúxemborg og Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar. Það vakti athygli að Rúnar Alex Rúnarsson var valinn í fyrsta sinn eftir að Arnar Gunnlaugsson tók við liðinu.
Hann kemur inn í hópinn á kostnað Antons Ara Einarssonar, sem hefur verið þriðji markvörður landsliðsins í undanförnum verkefnum.
Rúnar hefur ekki verið valinn í landsliðið frá því í nóvember 2023, þegar Ísland mætti Slóvakíu og Portúgal. Hann spilaði síðast fyrir landsliðið í október 2023 í 1-1 jafntefli gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli.
Rúnar er varamarkvörður danska stórliðsins FCK og hefur hann spilað fimm leiki með liðinu á tímabilinu í öllum keppnum.

TENGT EFNI
Landsliðshópurinn - Ísak Snær og Rúnar Alex koma inn
Ekki tilbúinn að fara til Japans
Arnar Gunnlaugsson var spurður á blaðamannafundi landsliðsins í hádeginu hvers vegna Rúnar væri fenginn í hópinn núna en ekki fyrr.
„Ég átti gott spjall við Rúnar fyrir ferðina til Japans. Hann var ekki alveg tilbúinn að koma þá út af ýmsum ástæðum. Ég skynjaði bara að hugur hans vildi koma. Hann var mjög spenntur fyrir þessu sem var í gangi,“ sagði Arnar og hélt áfram.
„Fyrir mér er ég búinn að vera ánægður með Anton Ara sem þriðja markvörð. Það er erfið staða, það eru minni líkur en ella að þú fáir mínútur og þú þarft að vera tilbúinn að láta skjóta mikið á þig á æfingum. Ef þú ert með markmann sem er að spila reglulega með FCK þá finnst mér að við þurfum að skoða það gaumgæfilega.
Hann er búinn að eiga farsælan feril. Er á uppleið núna eftir, ég ætla ekki að segja mögur ár, en miðað við hans gæði hefur hann ekki spilað jafn mikið og hann hefur vonast eftir. Hann er tilbúinn, sem ég og íslenskir knattspyrnuáhugamenn ættum að fagna. Hann er með hæfileikana til að veita hinur tveimur markvörðunum samkeppni,“ sagði Arnar að lokum.