Fotbolti.net
16.09.26 - 15:40
Kári Snorrason

Keflavík hefur boðið í tvo leikmenn Njarðvíkur

Skoraði átta mörk í Lengjudeildinni í sumar.

Skoraði átta mörk í Lengjudeildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Keflavík horfir til nágranna sinna í Njarðvík í leikmannamálum og hefur félagið boðið í bæði Oumar Diouck og Freystein Inga Guðnason samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Oumar er markahæsti leikmaður í sögu Njarðvíkur með 79 mörk en hann gekk til liðs við Njarðvíkinga frá KF árið 2022.

Keflavík hefur áður sýnt belgíska framherjanum áhuga. Hann er samningsbundinn félaginu út tímabilið 2028.
Freysteinn Ingi er efnilegur kantmaður sem er fæddur árið 2007. Keflavík reyndi við hann síðasta vetur en Njarðvík hafnaði tilboði þeirra.

Valur hefur sömuleiðis áhuga á Freysteini en samningur hans við Njarðvík rennur út eftir rúmt ár.

Freysteinn á að baki 19 leiki fyrir yngri landsliðin, þar af sjö leiki fyrir U19 liðið. Hann var í lykilhlutverki hjá Njarðvík í fyrra en spilaði aðeins sjö leiki í ár vegna meiðsla.
Fæddur árið 2007.

Fæddur árið 2007.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.