Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
Vill breyta fyrirkomulaginu - „Höfum þetta eins og Bestu deildina“
Dragan brjálaður: Fokking pirrandi
„Við þurfum að hækka rána í frammistöðunni okkar“
Gunnar: Súrt að tapa á svona skítamarki
Chris Brazell: Ég er alls ekki aðal maðurinn á bakvið þennan sigur
Magnús Már: Það hellirignir
Haraldur Freyr: Við sigldum þessu heim
Elvis: Skotland öðruvísi en Vestmannaeyjar
Þjálfari St. Mirren: Fyrsti leikurinn á tímabilinu
Gummi Kristjáns: Við viljum bara meira
Haraldur Árni: Ég veit ekkert hvað hann er að gera hérna í dag
„Mér var bara orðið illt í maganum þegar þeir voru að taka þessar aukaspyrnur í kringum teiginn“
Árni: Gott fyrir klúbbinn að taka Breiðholtsslaginn
Jökull Elísabetar: Glórulaust en þýðir ekkert að væla yfir því
Dóri Árna: Það er eitt að sjá þá á videoum og annað að máta sig gegn þeim
Gunnar Heiðar í banni í Þjóðhátíðarleiknum: Fyrsta rauða spjaldið mitt á ævinni
Óli Hrannar: Við þurfum að spýta í lófana til þess að geta farið að sækja sigra aftur
Venni: Held það sé hræðilegt að tippa á þessa deild
Höskuldur: Ætlum okkur að kasta öllu fram til þess að fara áfram
Arnar Gunnlaugs: Verður bara að reyna að krafla þig úr þessari holu
banner
   sun 14. apríl 2024 17:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Eyþór á U21 landsliðsæfingu síðasta haust. Hann hefur skorað eitt mark í fimm leikjum með U21.
Eyþór á U21 landsliðsæfingu síðasta haust. Hann hefur skorað eitt mark í fimm leikjum með U21.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: KR
'License to cook'
'License to cook'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það verður helvíti gaman að mæta Blikunum aftur og taka í spaðann á mönnum.'
'Það verður helvíti gaman að mæta Blikunum aftur og taka í spaðann á mönnum.'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Tíminn hjá Breiðabliki var virkilega lærdómsríkur, þetta var klárlega erfitt á köflum. Ég tek út úr þessu frábæra vini og frábæran tíma á vellinum'
'Tíminn hjá Breiðabliki var virkilega lærdómsríkur, þetta var klárlega erfitt á köflum. Ég tek út úr þessu frábæra vini og frábæran tíma á vellinum'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrr í dag tilkynnti KR um komu Eyþórs Arons Wöhler til félagsins en KR kaupir hann frá Breiðabliki. Eyþór skrifar undir þriggja ára samning og skömmu eftir að hann var tilkynntur sem nýr leikmaður félagsins ræddi hann við Fótbolta.net.

„Tilfinningin er geggjuð, það er frábært að vera mættur í Vesturbæinn. Andinn er geggjaður hérna og næstu þrjú ár verða klárlega geggjuð hérna. Þetta var tiltölulega stuttur aðdragandi, KR hafði samband á þriðjudaginn og búið að klára þetta á sunnudegi. Ég var strax spenntur þegar ég heyrði af áhuga KR, ég var ekki lengi að hugsa mig um og drífa mig í því að koma hingað og spila með KR. Þetta er frábært lið," sagði Eyþór.

Hann er 22 ára sóknarmaður sem hafði úr fleiri valmöguleikum að velja, en ákvað að velja KR.

„Leikstíllinn hentar mér og að spila á grasi spilaði líka inn í. Liðið er gott og ég smellpassa inn í liðið og stefnuna hjá KR. Þessir þættir vógu þungt í minni ákvarðanatöku."

„Ég er kominn hérna til að berjast um fremstu þrjár stöðurnar. Það er þunnt fram á við, allavega núna eftir að einhverjir duttu út. Ég ætla mér að grípa tækifærið."


Mjög vel mönnuð sóknarlína hjá Blikum
Eyþór var á lokaári samningsins við Breiðablik. „Það var alltaf pæling að taka tímabilið með Breiðabliki, en þegar það fór að bætast aðeins við fram á við hjá Blikum og ég fór aftar í goggunarröðina þá fór ég að líta í kringum mig. KR kom og bankaði á hurðina. Þetta var erfið ákvörðun en ég er sáttur."

„Tek út úr þessu frábæra vini og frábæran tíma á vellinum"
Var möguleiki að framlengja við Breiðablik og fara aftur á láni frá félaginu?

„Það var möguleiki, ég ætlaði í fyrstu að fara á lán og framlengja við Breiðablik. En KR kom bara með freistandi tilboð og ég ákvað að hoppa á það."

„Tíminn hjá Breiðabliki var virkilega lærdómsríkur, þetta var klárlega erfitt á köflum. Ég tek út úr þessu frábæra vini og frábæran tíma á vellinum. Ég tek út úr þessu líka að kynnast þessum þjálfurum; Óskari, Halldóri og Eyjólfi Héðinssyni. Það er rosalega dýrmætt og tek það inn í þennan tíma sem ég er fara inn í hjá KR."


Eyþór var spurður hvort að Magnús Már Einarsson, þjálfari uppeldisfélagsins Aftureldingar, hefði sett sig í samband á síðustu dögum. „Ég heyrði ekkert frá Magga, því miður. Ég hefði viljað heyra frá honum," sagði Eyþór léttur.

Ánægður með háleit markmið
Er markmiðið skýrt hjá KR, stefnan sett á titilinn?

„Frá byrjun, í fyrsta samtali, þá var sagt að við ætlum okkur báða titlana. Ég fílaði það við KR að markmiðin eru háleit og það er stefnt á allt saman. Það er verið að leggja talsvert í liðið og það vegur líka inn í þessa ákvörðun að mæta hingað og spila með KR."

Markmiðið að komast út sem fyrst
„Ég átti í sambandi við Mosfellinginn Axel Óskar og Aron Kristófer sem var með mér í ÍA. Þeir töluðu vel um KR og það væri frábær staður fyrir mig að þróa minn leik. Mig langar að koma mér út sem fyrst, það er æðsta markmiðið núna að verða atvinnumaður. Ég er að stefna á það sem fyrst."

„Það er bara að grípa tækifærið, skora, pota inn nokkrum mörkum og djöflast þarna frammi. Ef ég næ að standa mig hjá KR þá er ekki spurning um að það verður áhugi erlendis frá."


Mætir dýrvitlaus í leikinn gegn Blikum
KR mætir Breiðabliki í fjórðu umferð Bestu deildarinnar. „Ég er búinn að gjóa augunum á þann leik, það er leikur sem kitlar mig aðeins. Ég mæti dýrvitlaus í þann leik, ekki spurning um það. Það verður helvíti gaman að mæta Blikunum aftur og taka í spaðann á mönnum."

License to cook
Eyþór gaf, ásamt félaga sínum Emil Erni Aðalsteinssyni, út Frasabókina fyrir síðustu jól. Er einhver nýr frasi að vekja lukku núna?

„Það eru margir frasar sem eru að ganga gömlu góðu 'Let's cook' og 'License to cook' það er það sem kom upp á föstudaginn þegar KR vann 3-1 sigur. Ryderinn (Gregg Ryder þjálfari KR) fékk 'License to cook'," sagði Eyþór léttur.
Athugasemdir
banner
banner
banner