Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 14. maí 2022 06:00
Fótbolti.net
Vikan í Bestu gerð upp á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótboltavikan er gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag laugardag milli 12 og 14.

Elvar Geir og Tómas Þór verða á sínum stað og Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, verða með þeim.

5. umferð Bestu deildarinnar verður gerð upp, rýnt í leikina og litið á helstu fréttir og næstu leiki. Einnig er farið yfir það sem er að gerast í Lengjudeildinni.

Í seinni hlutanum verður farið í enska boltann og Tómas segir ferðasögu en hann var á faraldsfæti í vikunni; hitti Egil Drillo Olsen og var á heimavelli Tottenham þegar liðið rúllaði yfir Arsenal.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner