Fotbolti.net
14.06.17 - 22:28
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Gunnar Þorsteins: Aldrei spilað í logni í Grindavík

Auglýsing
Gunnar Þorsteinsson í leik gegn KR

Gunnar Þorsteinsson í leik gegn KR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði Grindvíkinga var ánægður með stigið gegn FH í kvöld en liðin gerðu 1-1 jafntefli. Andri Rúnar Bjarnason skoraði mark Grindavíkur en hann er orðinn markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar á þessu tímabili.
„Þetta var nákvæmlega sami leikur og gegn Val og KR sem voru síðustu tveir leikir. Lágum þétt til baka og gáfum fá færi á okkur. Svo auðvitað þegar við erum með heitasta mann deildarinnar, hann þarf bara eitt færi,\" sagði Gunnar.

Það var fallegt veður í Grindavík í kvöld en þrátt fyrir það þurftu Grindvíkingar að hlaupa mikið.

„Ég held ég hafi aldrei spilað í Grindavík í logni. Flaggstangirnar hreyfðust ekki. Maður vissi varla hvað átti að gera í fyrri hálfleik. Við djöfluðumst og djöfluðumst og ég var næstum búinn að æla í lokin.\"

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur setti markmiðið á 22 stig til þess að halda liðinu í deildinni. Liðið er komið með 14 stig núna og er því á góðu róli.

„Við höldum bara áfram. Einn leikur í einu og stigasöfnunin heldur bara áfram.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.