Fotbolti.net
14.06.20 - 23:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gústi Gylfa stoltur: Menn gáfu allt í leikinn

Auglýsing
Ágúst Gylfason.

Ágúst Gylfason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Gylfason fékk þann heiður að stýra Gróttu í kvöld í fyrsta leik félagsins í efstu deild karla í fótbolta.

Grótta mætti Breiðabliki, liðinu sem Gústi stýrði í fyrra og var niðurstaðan 3-0 tap.
„Eldskírn okkar á Kópavogsvelli var erfið á móti erfiðum andstæðing. Ég er samt gríðarlega stoltur af liðinu og áhorfendurnir voru frábærir í dag. Því miður fengum við engin stig, en frammistaðan var nokkuð 'solid' heilt yfir," sagði Gústi.

„Um leið og fórum að þora að halda boltanum, að þora að fá menn í okkur og annað þá fannst mér við vera nokkuð góðir, einum færri. Að fá okkur lokamarkið var skellur, 2-0 hefði kannski verið ásættanlegra en engu að síður er ég ánægður með liðið og frammistöðuna; menn gáfu allt í leikinn."

„Þrátt fyrir þennan skell förum við brattir inn í sumarið," sagði Gústi sem hrósaði stuðningsmönnum Gróttu sérstaklega fyrir stuðninginn í kvöld.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.