Fotbolti.net
14.07.04 - 17:06
Pétur Kristjánsson

Teddy Sheringham til West Ham (Staðfest)

Kominn til Hamranna

Kominn til Hamranna

Canon
West Ham hefur gengið frá samningum við Teddy Sheringham eftir að hann skrifaði undir eins árs samning við liðið.
Sheringham, sem er 38 ára, skoraði 9 mörk fyrir Portsmouth í úrvalsdeildinni í fyrra.

Hann hafði þetta að segja um málið: "Ég er mjög ánægður með að vera kominn. Ég talaði við Alan Pardew á síðasta tímabili þegar hann var stjóri Reading og varð mjög hrifinn af honum, þannig að þegar færi gafst á að ganga til liðs við hann hjá West Ham stökk ég á það. Ég hélt með hömrunum þegar ég var yngri. Að fá tækifæri til að spila með þessu frábæra félagi eftir öll þessi ár, er mikill heiður og ég er viss um mun njóta leiktíðarinnar og hjálpa þeim að komast í úrvalsdeildina."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.