Darlow í Man Utd (Staðfest)

Skrifar undir tveggja ára samning við félagið með ákvæði um árs framlengingu.

Mynd: EPA

Skrifar undir tveggja ára samning við félagið með ákvæði um árs framlengingu.

Mynd: EPA
Karl Darlow er genginn í raðir Manchester United frá Leeds á frjálsri sölu. Þessi 35 ára velski markvörður skrifar undir tveggja ára samning við félagið með ákvæði um árs framlengingu.
Samningur Darlow við Leeds rann út í sumar og segja enskir miðlar hann hafa hafnað nýjum samningi Leeds.
Hann var á mála hjá félaginu í fjögur ár og spilaði 22 leiki í deild á liðnu tímabili. Áður hefur hann verið hjá Newcastle og Nottingham Forest, en hann er uppalinn hjá Aston Villa og Forest.

Darlow á að vera varamarkvörður fyrir Senne Lammens en búist er við því að Altay Bayindir, sem var varamarkvörður á síðasta tímabili, yfirgefi félagið í sumar.
Introducing the newest member of our GK union: @KarlDarlow ????????????
— Manchester United (@ManUtd) July 14, 2026