Hjörtur Hermannsson í Gautaborg (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænska félagið IFK Göteborg er búið að krækja í íslenska landsliðsmanninn Hjört Hermannsson sem kemur úr röðum Volos í Grikklandi.
Gautaborg þarf á liðsstyrk að halda eftir slæma byrjun á deildartímabilinu. Liðið situr í fallsæti sem stendur, með 10 stig eftir 12 umferðir.
Hjörtur er 31 árs gamall og heldur til Gautaborgar í annað sinn á ferlinum, eftir að hafa leikið á láni hjá liðinu á lánssamningi frá PSV Eindhoven fyrir áratugi síðan.
Hjörtur, sem er uppalinn hjá Fylki, hefur einnig leikið fyrir Bröndby, Pisa og Carrarese á ferlinum, auk þess að eiga 32 landsleiki að baki.
Í Gautaborg hittir Hjörtur samlanda sinn Kolbein Þórðarson sem hefur verið fastamaður í byrjunarliðinu síðustu tvö ár.