Fotbolti.net
14.07.26 - 16:07
Brynjar Ingi Erluson

Hörður áfram í Grikklandi - Gerir tveggja ára samning

Hörður áfram í Grikklandi - Gerir tveggja ára samning
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hörður Björgvin Magnússon er að ganga í raðir gríska úrvalsdeildarfélagsins Atromitos, en hann gerir tveggja ára samning við félagið. Þetta herma heimildir Fótbolta.net.
Hörður er 33 ára örvfættur miðvörður sem lék með Levadiakos á síðasta tímabili eftir að hafa verið frá keppni í tvö ár vegna erfiðra hnémeiðsla.

Samningur Harðar við Levadiakos rann út eftir tímabilið og skoðaði hann ýmsa möguleika áður en hann ákvað að semja við Atromitos, sem er staðsett í Aþenu, höfuðborg Grikklands.

Landsliðsmaðurinn var með tilboð frá nokkrum öðrum félögum í grísku úrvalsdeildinni, en þegar upp var staðið reyndist Atromitos hentugasti kosturinn.

Gríska félagið mun tilkynna komu Harðar á næstu sólarhringum. Atromitos verður áttunda atvinnumannafélagið sem hann leikur með á eftir Juventus, Cesena, Spezia, Bristol City, CSKA Moskvu, Panathinaikos og Levadiakos.

Hann verður þriðji Íslendingurinn til að leika með Atromitos á eftir Samúel Kára Friðjónssyni og Viðari Erni Kjartanssyni. Samúel Kári lék með félaginu í tvö ár, frá 2022 til 2024, en Viðar var liðsfélagi hans á fyrra tímabilinu.

Atromitos hafnaði í níunda sæti grísku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili með 46 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.