Fotbolti.net
14.07.26 - 21:59
Ívan Guðjón Baldursson

Selfoss fær markvörð úr háskólaboltanum (Staðfest)

Selfoss fær markvörð úr háskólaboltanum (Staðfest)
Canon

Mynd: Selfoss

UMF Selfoss hefur samið við króatíska markvörðinn Filip Sabatti um að leika með liðinu út keppnistímabilið.
Sabatti er 23 ára og kemur úr bandaríska háskólaboltanum. Hann fyllir í skarðið fyrir Benjamín Jónsson sem er sjálfur á leið til náms í Bandaríkjunum.

Sabatti var öflugur í háskólaboltanum. Hann varð meistari með Memphis Tigers árið 2024 og var tvisvar sinnum valinn besti markvörðurinn í sinni deild.

Sabatti er þegar lentur á Íslandi og byrjaður að æfa með Selfyssingum, sem eru í toppbaráttu í 2. deild.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar19+2544
2Selfoss19+1136
3Kári19+1933
4Víkingur Ó.19-628
5KFA19+1026
6Fjölnir19+225
7Magni19-1025
8Kormákur/Hvöt19+524
9Dalvík/Reynir19-622
10Þróttur V.19-819
11KFG19-2019
12Hvíti riddarinn19-2216
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.