Fotbolti.net
14.07.26 - 09:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vuskovic til Brighton fyrir metfé (Staðfest)

Vuskovic til Brighton fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Brighton

Brighton hefur gengið frá kaupum á Luka Vuskovic frá Tottenham. Brighton greiðir 50 milljónir punda sem er metupphæð fyrir félagið.

Þessi 19 ára Króati lék í Þýskalandi hjá HSV á láni frá Tottenham á liðnu tímabili og stóð sig vel. Hann lék aldrei keppnisleik með Tottenham á hans tíma hjá félaginu.

Brighton greiðir 46 milljónir punda fyrir Vuskovic og getur sú upphæð auðveldlega hækkað um fjórar milljónir punda til viðbótar.

Tottenham fær einnig 20% af næstu sölu og getur jafnað tilboð í Vuskovic í framtíðinni.
Vuskovic er fjórða hæsta salan í sögu Tottenham.

Króatíski landsliðsmaðurinn skrifar undir fimm ára samning hjá Brighton með möguleiki á ári til viðbótar.

Vuskovic var í liði ársins í þýsku úrvalsdeildinni. Hann er mjög markheppinn, hefur skorað 16 mörk í 78 leikjum í meistaraflokki og eitt í sex landsleikjum.
Vuskovic til Brighton fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.