Fotbolti.net
14.08.26 - 17:10
Kári Snorrason

Brotnar framtennur og skurður þegar Þorleifur og Jónatan skullu saman á æfingu Breiðabliks

Þorleifur og Jónatan báðir með áverka eftir samstuð á æfingu.

Þorleifur og Jónatan báðir með áverka eftir samstuð á æfingu.

Canon

Mynd: Samsett

Þorleifur Úlfarsson og Jónatan Guðni Arnarsson skullu saman á æfingu Breiðabliks fyrr í dag með þeim afleiðingum að framtennur Jónatans brotnuðu og sauma þurfti nokkur spor á enni Þorleifs.

Fótbolti.net ræddi við Þorleif fyrr í dag og spurði hann út í skurðinn vígalega. „Þetta kom upp á æfingu í dag. Við lentum saman ég og Jonni (Jónatan Guðni Arnarsson). Það voru saumuð nokkur spor en það er allt í lagi með mig.“
Breiðablik mætir KR á Meistaravöllum á sunnudag og segist Þorleifur vera klár í slaginn þrátt fyrir samstuðið í dag. „Já, ég held það. Hann (Jónatan) lenti aðeins verr í þessu en ég held að hann verði góður.“

Í samtali við Fótbolta.net segist Jónatan vera sjálfur við hestaheilsu. Hann fékk nýjar bráðabirgðatennur og er klár í leikinn á sunnudag.

Hér að neðan er hægt að sjá viðtalið við Þorleif þar sem hann ræðir um atvikið.

sunnudagur 16. ágúst
Besta karla
18:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
18:00 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
18:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)
Kominn með tímabundið tanngervi.

Kominn með tímabundið tanngervi.

Canon

Mynd: Aðsend

Kitlar að fá fyrirsagnirnar - „Held að þetta hafi samt ekki verið rosalega mikill peningur“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.