Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 14. september 2021 11:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Engir sénsar teknir með Kante
Mynd: EPA
N'Golo Kante lék ekki með Chelsea gegn Aston Villa um helgina vegna meiðsla. Þá er Christian Pulisic að glíma við meiðsli.

Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, ræddi meiðsastöðuna á blaðamannafundi fyrir leik Chelsea gegn Zenit í Meistaradeildinni í kvöld.

Pulisic æfir einn þessa dagana en N'Golo Kante hefur æft með liðinu.

„Leikurinn í Meistaradeildinni kemur aðeins of snemma fyrir Kante og við tökum ekki áhættuna á þessu stigi tímabilsins. Hann æfir með liðinu á fimmtudag, föstudag og laugardag til að vera algjörlega tilbúinn í leikinn gegn Tottenham."

Chelsea mætir Tottenham í 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar næsta sunnudag.

Leikur Chelsea og Zenti hefst klukkan 19:00 í kvöld. Chelsea er ríkjandi Evrópumeistari.
Athugasemdir
banner
banner
banner