Fotbolti.net
14.10.26 - 14:30
Enski boltinn

Er komið nóg af Wirtz?

Florian Wirtz.

Florian Wirtz.

Canon

Mynd: EPA

Það er enn beðið eftir því að Florian Wirtz sýni almennilega hvers vegna Liverpool lagði fram um 116 milljónir punda í að fá hann frá Bayer Leverkusen sumarið 2025.

Wirtz skoraði fimm mörk og lagði upp þrjú í 33 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og hefur farið mjög hægt af stað á þessu tímabili.
Hann var heillum horfinn í síðasta leik gegn Manchester City í leik sem endaði 0-3 fyrir City.

„Liverpool getur tekið alveg eitthvað jákvætt úr þessum leik en eitt af því sem þeir geta ekki tekið jákvætt úr leiknum er Florian Wirtz," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í Enski boltinn hlaðvarpinu.

„Maður sér það á umræðunni að menn eru farnir að tala um að selja hann í janúar."

„Það er svo pirrandi við þennan leikmann að maður sér gæðin í nánast hverjum einasta leik," sagði Haraldur Örn Haraldsson en Wirtz hefur ekki náð að skila nægilega góðri frammistöðu í Liverpool treyjunni.

Wirtz hefur spilað alla sex leiki Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og lagt upp eitt mark.

Enski boltinn - City á toppnum í storminum og hiti á Carrick

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.