Fotbolti.net
14.10.26 - 19:09
Brynjar Ingi Erluson

Mahrez til Katar (Staðfest)

Mahrez til Katar (Staðfest)
Canon

Mynd: Al Shamal

Alsírski vængmaðurinn Riyad Mahrez er genginn til liðs við Al Shamal í Katar.
Mahrez er 35 ára gamall en hann var í lykilhlutverki hjá Leicester City þegar liðið vann eftirminnilega ensku úrvalsdeildina árið 2016. Síðar gekk hann til liðs við Manchester City þar sem hann vann fjölda titla og náði frábærum árangri.

Undanfarin ár hefur Mahrez leikið með Al Ahli í Sádi-Arabíu þar sem hann vann Meistaradeild Asíu tvö ár í röð, en hann rifti samningi sínum við félagið í sumar.

Á dögunum bárust fregnir af því að hann væri á leið til Al Shamal og hefur félagið nú staðfest komu hans á samfélagsmiðlum.

Al Shamal hafnaði í öðru sæti úrvalsdeildarinnar í Katar á síðustu leiktíð en hefur ekki byrjað þetta tímabil jafn vel. Liðið situr í fimmta sæti með átta stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.