Fotbolti.net
14.11.26 - 22:01
Ívan Guðjón Baldursson

Þjóðadeildin: Gyökeres með tvennu - Heimir tapaði á meginlandinu

Þjóðadeildin: Gyökeres með tvennu - Heimir tapaði á meginlandinu
Canon

Mynd: EPA

Fjórum síðustu leikjunum var að ljúka í B-deild Þjóðadeildarinnar, þar sem Viktor Gyökeres skoraði úr tveimur vítaspyrnum í sigri Svíþjóðar.
Svíar tóku á móti Bosníu og voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu 3-0 í leikhlé. Gestirnir mættu þó grimmir til leiks út í seinni hálfleikinn og náðu að minnka muninn niður í eitt mark. Það dugði ekki til og urðu lokatölur 3-2.

Alexander Isak var í byrjunarliði Svía og kom boltanum í netið, en ekki dæmt mark vegna rangstöðu. Þá skoraði Sead Kolasinac, fyrrum leikmaður Arsenal, seinna mark Bosníu í síðari hálfleiknum.

Svíþjóð tryggði sér toppsæti riðilsins í B-deildinni með þessum sigri og mun því leika í A-deild á næstu leiktíð í Þjóðadeildinni. Svíar eiga 13 stig eftir 5 umferðir, þar sem lærlingar Graham Potter hafa unnið alla leiki sína nema einn - þegar þeir gerðu jafntefli á útivelli í fyrri leiknum gegn Bosníu.

Pólland og Rúmenía eru einnig með í riðlinum og mættust í kvöld. Robert Lewandowski var í byrjunarliði Pólverja en tókst ekki að koma í veg fyrir 2-1 tap. Rúmenar eru áfram í botnsæti riðilsins en fá tækifæri til að forðast fall niður í C-deild í lokaumferðinni.

Lærlingar Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu töpuðu þá naumlega í Austurríki þrátt fyrir stórleik Caoimhín Kelleher á milli stanganna.

Staðan var markalaus eftir nokkuð tíðindalítinn fyrri hálfleik en Austurríkismenn juku sóknarþungan er tók að líða á seinni hálfleikinn og uppskáru að lokum sigurmark á 78. mínútu. Framherjinn stóri Sasa Kalajdzic var þar á ferðinni þegar hann potaði boltanum inn eftir hornspyrnu.

Írar fengu sín færi til að skora í leiknum en nýttu þau ekki, svo lokatölur urðu 1-0. Heimir og félagar taka á móti Kósovó í lokaumferð Þjóðadeildarinnar og er það úrslitaleikur um annað sæti riðilsins. Annað sætið gefur þátttökurétt í umspili um sæti í A-deild fyrir næstu leiktíð.

Írar geta að sama skapi fallið niður í C-deild ef þeir tapa heimaleiknum gegn Kósovó og Ísrael vinnur sinn leik í lokaumferðinni.

Á sama tíma hélt magnaður árangur Norður-Írlands áfram þegar stríðshrjáðir Úkraínumenn kíktu í heimsókn.

Terry Devlin, leikmaður Portsmouth, skoraði eina markið í nokkuð lokuðum leik í Belfast og endurheimti þannig toppsæti riðilsins.

Norður-Írar eru með eins stigs forystu á Ungverja fyrir úrslitaleikinn í lokaumferðinni þegar Norður-Írland heimsækir Ungverjaland.

Svíþjóð 3 - 2 Bosnía
1-0 Daniel Svensson ('5 )
2-0 Viktor Gyokeres ('11 , víti)
3-0 Viktor Gyokeres ('45 , víti)
3-1 Armin Gigovic ('48 )
3-2 Sead Kolasinac ('62 )

Rúmenía 2 - 1 Pólland
1-0 Alexandru Cicaldau ('68 )
2-0 Dennis Man ('72 )
2-1 Marcel Regula ('82 )

Austurríki 1 - 0 Írland
1-0 Sasa Kalajdzic ('78 )

N-Írland 1 - 0 Úkraína
1-0 Terry Devlin ('68 )
Þjóðadeildin: Gyökeres með tvennu - Heimir tapaði á meginlandinu
Canon

Mynd: SF

Þjóðadeildin: Gyökeres með tvennu - Heimir tapaði á meginlandinu
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Gyökeres með tvennu - Heimir tapaði á meginlandinu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.