Fotbolti.net
14.12.19 - 11:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Liverpool og Watford: Robertson á bekknum

Útlit er fyrir að Shaqiri hafi nýlega farið í hárígræðslu. Hann byrjar hjá Liverpool í dag.

Útlit er fyrir að Shaqiri hafi nýlega farið í hárígræðslu. Hann byrjar hjá Liverpool í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, mætir Watford, botnliði deildarinnar, í hádegisleik deildarinnar í dag. Leikurinn hefst klukkan 12:30 og er búið að opinbera byrjunarliðin.
Nigel Pearson er að stýra Watford í fyrsta sinn í dag, en hann tók við liðinu fyrir rúmri viku síðan.

Frá síðasta leik Liverpool, 2-0 sigri gegn Salzburg í Meistaradeildinni, gerir Jurgen Klopp þrjár breytingar. Joe Gomez, James Milner og Xherdan Shaqiri koma inn í byrjunarliðið.

Andy Robertson og Naby Keita fara á bekkinn. Dejan Lovren er meiddur.

Frá síðasta leik Watford, 0-0 jafntefli við Crystal Palace, eru gerðar tvær breytingar. Will Hughes og Adrian Mariappa koma inn fyrir Adam Masina og Roberto Pereyra.

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Gomez, Van Dijk, Milner, Wijnaldum, Henderson, Shaqiri, Mane, Firmino, Salah.
(Varamenn: Adrian, Robertson Keita, Oxlade-Chamberlain, Lallana, Origi, Williams)

Byrjunarlið Watford: Foster, Femenia, Kabasele, Cathcart, Mariappa, Doucoure, Capoue, Hughes, Sarr, Deulofeu, Deeney.
(Varamenn: Gomes, Dawson, Chalobah, Gray, Quina, Success, Foulquier)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Man City1+13
7Ipswich Town1+13
8Leeds1+13
9Chelsea1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.