Fortuna Dusseldorf 0 - 3 RB Leipzig
0-1 Patrik Schick ('2 )
0-2 Timo Werner ('58 , víti)
0-3 Nordi Mukiele ('75 )
0-1 Patrik Schick ('2 )
0-2 Timo Werner ('58 , víti)
0-3 Nordi Mukiele ('75 )
Lokaleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni er nú ný lokið, þar tók Fortuna Dusseldorf á móti RB Leipzig sem gat með sigri farið upp fyrir Gladbach á topp deildarinnar.
Leikurinn byrjaði vel fyrir gestina í Leipzig því Patrik Schick kom þeim yfir á 2. mínútu. Staðan var 0-1 í hálfleik.
Í seinni hálfleik bættu gestirnir við tveimur mörkum, Timo Werner skoraði úr vítaspyrnu á 58. mínútu og Nordi Mukiele skoraði þriðja markið á 75. mínútu.
Lokatölur 0-3 sigur Leipzig sem situr nú á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með 33 stig, tveimur stigum meira en Gladbach sem á leik á morgun, þeir heimsækja Wolfsburg og geta því með sigri endurheimt toppsætið.
Athugasemdir