Fotbolti.net
15.01.20 - 19:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalski boltinn

Ronaldo er með skútabólgu - Ekki með Juve í kvöld

Ronaldo er með skútabólgu - Ekki með Juve í kvöld
Canon

Mynd: Getty Images

Juventus og Udinese mætast klukkan 19:45 í ítalska bikarnum.

Cristiano Ronaldo verður ekki með hjá Juventus. Hann fékk skútabólgu nú seinni partinn og verður ekki viðstaddur leikinn.
Af doktor.is:
Í andlitsbeinum mannsins eru fjögur pör af holum sem kallast skútar og sýking í þeim því skútabólga eða kinnholubólga. Dæmi um eitt par eru kinnholurnar og annað par t.d. ennisholurnar. Þessi texti miðast að mestu við sýkingu í kinnholum en sýkingar þar og í ennisholum eru algengastar.

Við sýkingu þrengjast frárennsligöng frá kinnholum til nefsins. Einkennin eru verkir í kinnum, bak við augu, enni og stundum í hnakka. Kvillinn er algengur hjá eldri börnum og fullorðnum. Meðferðin felur í sér að losa um rennslið frá lokaða holrúminu.

Hafir þú frekari áhuga á skútabólgu má lesa meira um það á doktor.is
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.