Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 15. febrúar 2021 20:58
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolta.net mótið: Elliði vann C-deildina - Tvö mörk á lokamínútunum
Elliði er C-deildarmeistari Fótbolta.net mótsins
Elliði er C-deildarmeistari Fótbolta.net mótsins
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Elliði 2 - 0 Árborg
1-0 Pétur Óskarsson ('84 )
2-0 Óðinn Arnarsson ('90 )

Elliði er C-deildarmeistari Fótbolta.net mótsins eftir 2-0 sigur á Árborg í kvöld en liðin áttust við á Würth-vellinum í Árbæ.

Elliði hafnaði í 7. sæti Fótbolta.net mótsins á síðasta ári á meðan Árborg hafnaði í 6. sætinu.

Þessi lið léku til úrslita í kvöld en staðan var markalaus í hálfleik. Það var ekki fyrr en undir lok leiksins sem Elliði tryggði sér sigurinn.

Pétur Óskarsson, fyrirliði Elliða, kom liðinu yfir á 84. mínútu áður en Óðinn Arnarsson tryggði sigurinn á 90. mínútu.

Lokatölur 2-0 fyrir Elliða sem er meistari C-deildar Fótbolta.net mótsins í ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner