Fotbolti.net
03.10.26 - 16:27
Brynjar Ingi Erluson

Leikmaður Flamengo skoraði tvennu fyrir Brasilíu

Samuel Lino skoraði tvennu í seinni hálfleik

Samuel Lino skoraði tvennu í seinni hálfleik

Canon

Mynd: EPA

Brasilía vann sannfærandi 4-0 sigur á heimamönnum í vináttulandsleik í Kolkata á Indlandi í dag.
Carlo Ancelotti stillti upp hálfgerðu varaliði, en gerði þó ellefu breytingar í leiknum.

Estevao skoraði á 28. mínútu og lagði upp mark Pedro fjórtán mínútum síðar. Varamaðurinn Samuel Lino, sem leikur með Flamengo í heimalandinu, bætti svo við tveimur laglegum mörkum í síðari hálfleik í fjórða landsleik sínum.

Hann skoraði fyrst á 58. mínútu eftir sendingu Pedro og innsiglaði síðan sigurinn í uppbótartíma með hörkuskoti eftir stoðsendingu Mauro Junior.

Fagmannleg frammistaða hjá Brasilíu sem hefur nú lokið þessu landsliðsverkefni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.