03.10.26 - 12:56
Brynjar Ingi Erluson
Leggur skóna á hilluna aðeins nítján ára eftir að hluti af fætinum var fjarlægður

Luke Munson

Mynd: Furman University

Luke Munson

Mynd: Furman University
Luke Munson, varnarmaður Furman-háskólans í Bandaríkjunum, hefur neyðst til að leggja skóna á hilluna eftir að fjarlægja þurfti hluta af fætinum vegna meiðsla.
Munson er 19 ára og á öðru ári sínu í skólanum. Hann meiddist í leik gegn Duke-háskólanum í lok ágúst og þurfti í kjölfarið að gangast undir tvær aðgerðir.
Meiðslin voru flókin og í seinni aðgerðinni þurfti að fjarlægja neðri hluta fótarins. Þar með var fótboltaferli hans lokið.
„Ég vil þakka öllum þeim sem ég hef notið þess heiðurs að deila vellinum með og get kallað bræður mína. Einnig vil ég þakka öllum sem hafa verið hluti af vegferð minni í íþróttinni, í gegnum súrt og sætt. Þið gerðuð mig að þeim manni sem ég er í dag. Ég vil þakka öllum liðum og þjálfurum sem gáfu mér tækifæri til að læra.“
„Í seinni aðgerðinni var neðri hluti fótarins fjarlægður og því get ég ekki lengur stundað íþróttina sem ég elska. Að baki eru þrettán ár af ótrúlegri reynslu með svo mörgu frábæru fólki, bæði liðsfélögum og mótherjum. Að lokum vil ég segja við litla strákinn sem dreymdi um að verða atvinnumaður fyrir þrettán árum að mér þykir ótrúlega leitt að sá draumur sé úti,“ sagði Munson.
Munson lék með akademíu FC Dallas frá 2022 til 2024 áður en hann gekk til liðs við Charlotte FC. Þar lék hann með akademíunni og kom einnig við sögu í tveimur leikjum í Next Pro-deildinni.
Hann lék 22 leiki á fyrsta ári sínu með Furman-skólanum en hefur nú þurft að leggja skóna á hilluna, aðeins 19 ára gamall.