03.10.26 - 14:27
Brynjar Ingi Erluson
Raphinha bestur annan mánuðinn í röð

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíski vængmaðurinn Raphinha hefur verið á skotskónum í upphafi tímabilsins og var valinn leikmaður mánaðarins í La Liga annan mánuðinn í röð.
Raphinha skoraði fimm mörk í ágúst og var valinn leikmaður mánaðarins. Hann gerði enn betur í september þegar hann skoraði sjö mörk og gaf tvær stoðsendingar.
Hann er því vel að verðlaununum kominn annan mánuðinn í röð. Alls hefur hann skorað 14 mörk og gefið þrjár stoðsendingar í öllum keppnum á tímabilinu.
Á síðustu leiktíð voru tveir leikmenn valdir bestir tvo mánuði í röð. Kylian Mbappe, leikmaður Real Madrid, hlaut verðlaunin í september og október en Börsungurinn Lamine Yamal í nóvember og desember.
Enginn hefur verið valinn leikmaður mánaðarins þrjá mánuði í röð frá því verðlaunin voru fyrst veitt árið 2013. Lionel Messi og Antoine Griezmann hafa hlotið þau oftast allra, átta sinnum hvor.

???????????? Otro mes de locura para @Raphinha_11b.
— LALIGA (@LaLiga) October 2, 2026
?????????? ¡El delantero del @FCBarcelona_es es el ???????????????????????????? ???????????? ???????????? de septiembre en #LALIGAEASPORTS!https://t.co/kWzpACW9vQ#LALIGAPOTM | #PREMIOSLALIGA pic.twitter.com/MRwHDHEucL