03.10.26 - 13:25
Brynjar Ingi Erluson
Fréttamannafundi Heimis lauk skyndilega eftir spurningar og ásakanir ísraelsks blaðamanns

Heimir Hallgrímsson

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson

Mynd: EPA
Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska landsliðsins, bíður líklega óþreyjufullur eftir að landsleikjaverkefninu ljúki, enda hefur ýmislegt gengið á síðustu daga og vikur. Í dag var blaðamannafundi hans slitið skyndilega eftir spurningar og ásakanir ísraelsks blaðamanns.
Mikill stormur geisaði í kringum leik Ísraels og Írlands á dögunum og um tíma var óvíst hvort hann færi fram.
Gavin Bazunu, markvörður Íra, ákvað að spila ekki og nokkrir leikmenn íhuguðu að fylgja fordæmi hans. Eftir atkvæðagreiðslu á hóteli liðsins var þó ákveðið að taka slaginn.
Írar unnu sannfærandi sigur en umdeild atvik settu svip á leikinn. Írsku leikmennirnir horfðu niður í grasið á meðan þjóðsöngur Ísraels var spilaður og neituðu að taka í hendur heimamanna.
Heimir hefur þurft að svara bæði pólitískum og fótboltatengdum spurningum. Þeim er ekki lokið þótt útileikurinn sé að baki, enda eiga Írar nú heimaleik gegn Ísraelum framundan.
Á blaðamannafundi í dag spurði ísraelskur blaðamaður Heimi meðal annars út í atvik á miðvikudag, þegar flugmaður stakk annan flugmann á leið frá Dúbaí til Tel Aviv. Þá hélt blaðamaðurinn því einnig fram að írskur leikmaður hefði beitt ísraelskan leikmann kynþáttaníði í fyrri leiknum en fjölmiðlafulltrúinn sagði það ekki satt.
Fjölmiðlafulltrúi Íra sagði þá nóg komið og lauk fundinum. Blaðamaðurinn hafði ekki farið eftir þeirri reglu að Heimir myndi aðeins svara spurningum um fótbolta.
„Þetta er blaðamannafundur. Okkur var boðið hingað til að spyrja spurninga,“ sagði ísraelski blaðamaðurinn.
Fjölmiðlafulltrúinn kallaði í kjölfarið írsku miðlana saman svo þeir gætu rætt frekar við Heimi.
Leikurinn fer fram á morgun og líkt og fyrir fyrri viðureignina er mikil spenna í kringum hann en leikurinn er spilaður við luktar dyr í Serbíu. Vonandi fær írska liðið að einbeita sér að fótboltanum þegar honum er lokið.