03.10.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Jesus: Get ekki hunsað þessa umræðu um Ronaldo

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jorge Jesus, þjálfari Portúgals, sagðist í dag ætla að ræða málefni Cristiano Ronaldo nánar við fjölmiðla eftir leikinn gegn Noregi á morgun.

TENGT EFNI
Þjálfarinn samþykkir sáttafund með Ronaldo
Ronaldo yfirgaf landsliðshópinn eftir að hafa setið allan tímann á bekknum í fyrri leiknum gegn Noregi.
Hann taldi Jesus hafa svikið samkomulag þeirra frá því í ágúst varðandi þá leiki sem Ronaldo ætti að spila og taka þátt í.
Málið hefur farið illa í Portúgala og stuðningsmenn Ronaldo sem hafa gagnrýnt Jesus og fótboltasambandið harðlega.
Þá veittist maður að Jesus á flugvellinum í Porto en þjálfarinn fór stuttlega yfir málið og sagðist ætla að ræða það betur að landsleikjaverkefninu loknu.
„Ég get ekki hunsað þessa umræðu um Cristiano Ronaldo. Hann er tákn portúgalska landsliðsins og landsins. Við skulum hafa það alveg á hreinu. Eftir leikinn verður nægur tími til að svara þessum spurningum og ræða málið,“ sagði Jesus.