03.10.26 - 18:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Úrslitaleikur gegn Eistlandi framundan - „Eru með uppskriftina"

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland vann sannfærandi sigur á Búlgaríu í C-deild þJóðadeildarinnar í kvöld. Ísland er á toppi riðilsins með sjö stig, tveimur stigum á undan Eistum.
Ísland gerði jafntefli gegn Eistlandi í fyrsta leik á Laugardalsvelli en vann sannfærandi sigra á Lúxemborg og Búlgaríu. Það er ljóst að það verður úrslitaleikur í Eistlandi á þriðjudaginn.
Ísland gerði jafntefli gegn Eistlandi í fyrsta leik á Laugardalsvelli en vann sannfærandi sigra á Lúxemborg og Búlgaríu. Það er ljóst að það verður úrslitaleikur í Eistlandi á þriðjudaginn.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Búlgaría
„Frábært að fá tvo sigurleiki í röð. Hins vegar erum við fara í úrslitaleik við Eista. Þeir eru pínu með uppskriftina. Við vorum í bullandi veseni með þessa fimm manna lágvörn. Við eigum erfitt með að koma boltanum milli varnar og miðju," sagði Kári Árnason í settinu á Sýn Sport eftir leikinn í dag.
„Þau færi sem við fengum í dag komu þannig. Bæði Lúxemborg og Búlgaría komu í þennan leik á allt öðrum forsendum. Þau halda að þau séu betri en við í fótbolta en eru það svo sannarlega ekki. Þetta var illa uppsettur leikur miðað við getu hjá bæði Búlgaríu og Lúxemborg."