03.10.26 - 12:09
Brynjar Ingi Erluson
Dyche: Þeir þykjast vita allt en ég segi þeim bara að halda kjafti

Sean Dyche

Mynd: EPA

Dyche fannst litið framhjá Eddie Howe

Mynd: EPA

Sean Dyche

Mynd: EPA
Enski þjálfarinn Sean Dyche er lítt hrifinn af þróuninni í fótboltanum og segir stuðningsmenn nú telja sig vita meira en þjálfararnir.
Dyche ræddi enska landsliðsþjálfarastarfið í viðtali við Times og sagðist hafa talið Eddie Howe hinn fullkomna kost áður en Thomas Tuchel var ráðinn.
Tuchel stýrði Englendingum í undanúrslit heimsmeistaramótsins en var harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðuna gegn Argentínu. Englendingar komust yfir en drógu sig of mikið til baka og töpuðu að lokum 2-1.
Dyche, sem hefur stýrt félögum á borð við Burnley, Everton og Nottingham Forest, ræddi enska landsliðið og þær auknu áskoranir sem þjálfarar standa frammi fyrir í dag.
„Það var litið framhjá Eddie Howe þegar ráðið var í enska landsliðsþjálfarastarfið. Ef menn vilja breytingar væri hann góður kostur.“
„Menn segja að þú þurfir að vinna þér inn fyrir því að fá starfið og láta liðið spila á réttan hátt. Ég held að við hefðum getað farið alla leið á HM þótt við færum svokallaða ranga leið.“
„Þegar við þurftum að gera það gerðum við það samt ekki. Það hefði auðveldlega verið hægt að segja: 'Komið boltanum aftur fyrir þá og minnkið pressuna,' en við gerðum það ekki.“
Dyche telur aukið aðgengi að tölfræði og leikgreiningum ekki hafa gert fótboltanum gott. Stuðningsmenn telji sig nú vita meira en þjálfararnir sjálfir.
„Það er endalaust deilt um þetta í fótboltanum og þetta er áskorun fyrir þjálfara í dag. Fyrir hvað stendur þú? Hvað vill enska fótboltasambandið innleiða hjá liðinu? Einu sinni var aðalmálið að vinna leiki en ég er ekki endilega viss um að svo sé lengur. Hvernig getur það að vinna ekki verið aðalmálið í leik þar sem markmiðið er að vinna?“
„Það merkilega er að stuðningsmenn virðast hafa betri skilning á leiknum, en það klikkaða er að nú halda þeir að þeir viti allt. Áður ræddu þeir úrslitin og kannski einhvern leikmann sem hafði spilað illa. Nú snúast deilurnar um taktík.“
„Vinir mínir eru alltaf að þessu en ég segi þeim bara að halda kjafti. Einn vinur minn er múrari og þykist vita meira en ég. Eða réttara sagt trúir hann því að hann viti meira,“ sagði Dyche.