Fotbolti.net
03.10.26 - 14:44
Brynjar Ingi Erluson

Þjálfarinn samþykkir sáttafund með Ronaldo

Þjálfarinn samþykkir sáttafund með Ronaldo
Canon

Mynd: EPA

Jorge Jesus, þjálfari portúgalska landsliðsins, hefur samþykkt að setjast niður með Cristiano Ronaldo og reyna að ná sáttum. A'Bola greinir frá.
Ronaldo yfirgaf herbúðir portúgalska landsliðsins á dögunum eftir að hafa setið allan tímann á bekknum gegn Noregi í Þjóðadeildinni.

Samkvæmt heimildum nálægt honum ætlaði hann að hætta með landsliðinu eftir heimsmeistaramótið en Jesus og portúgalska fótboltasambandið sannfærðu hann um að hann hefði enn mikilvægu hlutverki að gegna.

Þeir áttu að hafa samið um að Ronaldo spilaði báða heimaleikina en fengi hvíld í útileikjunum. Jesus sagðist þó þurfa á honum að halda gegn Noregi en hafði hann á bekknum og lét hann hita upp án þess að gefa honum mínútu.

Ronaldo taldi þjálfarann hafa brotið samkomulagið og yfirgaf hópinn í kjölfarið.

Þeir eiga síðan að hafa rætt saman og Jesus átt að biðja Ronaldo afsökunar á fréttamannafundi en það gerði hann ekki. Samband þeirra er því sagt í molum og Ronaldo íhugar alvarlega að hætta með landsliðinu.

Samkvæmt A Bola hefur portúgalska fótboltasambandið nú sannfært Jesus um að setjast niður með honum á sáttafundi en Ronaldo hefur ekki enn ákveðið hvort hann þiggur það.

Jesus og sambandið hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir framkomuna gagnvart Ronaldo og henni hefur verið mótmælt á götum Lissabon og víðar.

Óánægjan er einnig farin að gera vart við sig innan landsliðshópsins þótt Portúgal hafi unnið bæði Noreg og Danmörku án hans. Liðið mætir Norðmönnum á ný á morgun í síðasta leik verkefnisins.
Skilti til stuðnings Ronaldo hafa verið sett upp víða í Lissabon og á fleiri stöðum

Skilti til stuðnings Ronaldo hafa verið sett upp víða í Lissabon og á fleiri stöðum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.