03.10.26 - 13:57
Brynjar Ingi Erluson
Sesko á óskalista Juventus

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Slóvenski framherjinn Benjamin Sesko er á óskalista Juventus fyrir næsta sumar samkvæmt heimildum Gazzetta dello Sport.
Juventus skoðar nú framherja fyrir næsta tímabil en talið er afar ólíklegt að félagið kaupi Nick Woltemade frá Newcastle.
Woltemade kom á láni út tímabilið án kaupákvæðis og er félagið því byrjað að skoða framherja fyrir næstu leiktíð.
Samkvæmt Gazzetta dello Sport hefur Juventus mikinn áhuga á Sesko. Þá er bandaríski framherjinn Folarin Balogun, sem leikur með Mónakó, einnig til skoðunar.
Sesko er 23 ára og hefur ekki átt fast sæti í liði Michael Carrick á leiktíðinni. Hann hefur leikið rúmar 200 mínútur í sex leikjum og skorað tvö mörk.
Hann glímdi við meiðsli skömmu fyrir upphaf tímabilsins og meiddist á ný fyrir síðasta deildarleik gegn Fulham.