Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   mið 15. maí 2024 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
5. deild: Sigrar hjá Álftanesi og Skautafélaginu
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Það fóru tveir leikir fram í 5. deildinni í gær þar sem Álftanes vann heimaleik í A-riðli á meðan SR vann í B-riðli.

Stephan Briem, Hilmir Ingi Jóhannesson og Andri Janusson skoruðu mörkin í 3-1 sigri Álftaness gegn Úlfunum. Jón Haukur Bjarnason gerði eina mark Úlfanna í leiknum en liðin voru að mætast í fyrstu umferð sumarsins.

Benedikt Svavarsson setti þá þrennu í stórsigri Skautafélags Reykjavíkur gegn Uppsveitum. George Razvan Chariton gerði eina mark Uppsveita úr vítaspyrnu.

KFR og Mídas eru einnig með sigra eftir fyrstu umferðina í B-riðlinum, á meðan Álafoss og Þorlákur byrjuðu A-riðilinn á sigrum.

Álftanes 3 - 1 Úlfarnir
1-0 Stephan Briem ('25 )
2-0 Hilmir Ingi Jóhannesson ('41 )
3-0 Andri Janusson ('92)
3-1 Jón Haukur Bjarnason ('95 )

SR 5 - 1 Uppsveitir
1-0 Benedikt Svavarsson ('13 )
2-0 Benedikt Svavarsson ('33 )
3-0 Deividas Leskys ('36 , Sjálfsmark)
3-1 George Razvan Chariton ('51 , Mark úr víti)
4-1 Benedikt Svavarsson ('51 )
5-1 Birgir Ísar Guðbergsson ('85 )
Rautt spjald: Daníel Ben Daníelsson , Uppsveitir ('86)
5. deild karla - A-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Hafnir 12 8 4 0 53 - 20 +33 28
2.    Álafoss 11 8 3 0 42 - 12 +30 27
3.    Álftanes 12 8 2 2 34 - 18 +16 26
4.    Spyrnir 12 5 3 4 28 - 26 +2 18
5.    Úlfarnir 11 5 0 6 30 - 24 +6 15
6.    Samherjar 12 4 3 5 27 - 23 +4 15
7.    Léttir 13 3 2 8 25 - 41 -16 11
8.    Þorlákur 11 2 1 8 12 - 35 -23 7
9.    KM 12 0 2 10 10 - 62 -52 2
5. deild karla - B-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Smári 12 9 2 1 51 - 15 +36 29
2.    Mídas 11 9 1 1 42 - 10 +32 28
3.    KFR 13 8 2 3 47 - 15 +32 26
4.    Hörður Í. 11 7 1 3 31 - 12 +19 22
5.    SR 12 7 1 4 40 - 24 +16 22
6.    Uppsveitir 12 3 1 8 20 - 37 -17 10
7.    Stokkseyri 12 3 1 8 21 - 42 -21 10
8.    Reynir H 12 1 3 8 13 - 50 -37 6
9.    Afríka 11 0 0 11 7 - 67 -60 0
Athugasemdir
banner
banner