Samfélagsmiðlastjarna sakaði Sigga Bond um kynþáttaníð og fór fram á að hann yrði fjarlægður

Sigurður Bond Gísli Snorrason.

Mynd: Sævar Breki Einarsson

Sigurður Bond Gísli Snorrason.

Mynd: Sævar Breki Einarsson
Nýjasta myndbandið frá ensku samfélagsmiðlastjörnunni Morgan Sam Lee Burtwistle, sem kallar sig Angry Ginge, hefur vakið mikla athygli hér á landi.
Þar sakar hann Sigurð Gísla Bond Snorrason um kynþáttaníð í stúkunni meðan á leik Englands og Gana stóð á HM en leikurinn fór fram í Boston.
„Ég biðst afsökunar á ummælum mínum um leikmenn Gana. Þetta kemur ekki fyrir aftur, getum við ekki gleymt þessu?“ segir Siggi Bond í myndbandinu en mbl.is fjallar um málið.
Í myndbandinu má sjá þegar Angry Ginge kvarta yfir Sigga við öryggisgæslu vallarins og fer fram á að honum verði hent út af vellinum.
„Skilaboðin eru þau að það eigi að sparka fordómum úr fótboltanum. Ég lét öryggisgæsluna vita og hann fékk aðvörun en fékk samt að klára leikinn. Ég ætla ekki að endurtaka það sem hann sagði um Gana-liðið en þetta er til háborinnar skammar," segir Angry Ginge.
Í lok myndbandsins gagnrýnir Angry Ginge viðbrögð öryggisvarða á leikvangnum og segir að Sigga Bond hafi ekki verið vísað burtu.
Siggi Bond hefur verið áberandi í umræðunni um fótbolta hér á landi og er einn af föstum gestum hjá Dr. Football. Hann er fyrrum fótboltamaður og á tvo leiki að baki í efstu deild með uppeldisfélagi sínu FH. Hann er í Bandaríkjunum á vegum veðmálafyrirtækisins Coolbet.