Hvað tekur við hjá Skotum?

Eftir tapið gegn Brasilíu í gær.

Mynd: EPA

Unnu Haítí í fyrstu umferð.

Mynd: EPA

Eftir tapið gegn Brasilíu í gær.

Mynd: EPA
Skotland tapaði 3-0 fyrir Brasilíu í lokaumferð riðlakeppninnar á HM í gærkvöld. Skotar eru nú með þrjú stig og í þriðja sæti C-riðils.
Liðið hefur aldrei komist í útsláttarkeppni á HM en Skotar þurfa að bíða til sunnudags til að vita örlög sín.
Það þýðir að Skotland þarf að vona að að minnsta kosti fjögur lið nái ekki þremur stigum, eða að þau geri það en verði með verri markatölu en Skotar.

TENGT EFNI
Þessi 13 lið hafa tryggt sig áfram - Sjö fallin úr leik
Eins og staðan er í dag eru fimm þjóðir í þriðja sæti með lakari árangur en Skotar. Af þeim fimm liðum eiga fjögur eftir að spila einn leik í riðlakeppninni.
Hvað segir ofurtölvan?
Samkvæmt ofurtölvu Opta eiga lið með þrjú stig og mínus þrjú í markatölu aðeins 42% líkur að komast áfram í 32-liða úrslitin.
Lið með þrjú stig og mínus tvo í markatölu er 63% líkur og 84% líkur með mínus einn í markatölu og þrjú stig. Mörkin þrjú sem liðið fékk á sig gegn Brasilíu gætu því reynst ansi dýr.

Svona standa leikar hjá liðum í þriðja sæti.

Mynd: FotMob