Fotbolti.net
15.05.26 - 11:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mætir Þór í fyrsta sinn í mótsleik

Þjálfaði Þór 2006-2010 og aftur 2017-18.

Þjálfaði Þór 2006-2010 og aftur 2017-18.

Canon

Mynd: Rúnar Ingimarsson

Lárus Orri Sigurðsson mætir á sunnudag til Akureyrar með lið sitt ÍA og heimsækir þar Þór.

Það verður í fyrsta sinn sem Lárus mætir Þór í mótsleik en hann hefur mætt liðinu allavega tvisvar sinnum í Lengjubikarnum sem þjálfari, fyrst með KF fyrir rúmum áratug síðan og svo í vetur með ÍA. Árið 2014 sigraði Þór lið KF 0-4 og í vetur endaði leikur Þórs og ÍA með 1-1 jafntefli í Akraneshöllinni.

Lárus Orri er fæddur á Akureyri en lék bæði með ÍA í yngri flokkunum og hóf svo meistaraflokksferilinn með Þór og spilaði með pabba sínum, Sigurði Lárussyni fyrsta árið fyrir norðan.

Eftir atvinnumennsku á Englandi og rúmlega 40 landsleiki sneri Lárus aftur í Þór og lék með liðinu undir lok ferilsins. Hann var þjálfari liðsins 2006-2010 og aftur 2017-18.
Leikurinn á sunnudag hefst klukkan 16:00 og fer fram á VÍS-vellinum í Þorpinu.

Eftir sigur á Grindavík í Mjólkurbikarnum var Lárus aðeins spurður út í komandi leik.

„Við erum komnir áfram í bikarnum og nú er bara að recovera og gera sig klára fyrir ferð til Akureyrar um helgina. Ég bý á Akranesi en hluti af fjölskyldunni býr á Akureyri. Yngsti sonur minn, Svenni, er yfirleitt hoppandi og skoppandi með stuðningsmannasveit Þórsara. Þannig ég bíð spenntur eftir að sjá hvar hann verður í stúkunni," sagði Lárus Orri.

Eitt stig skilur liðin að í töflunni, Þór er með sex stig og ÍA fimm eftir sex umferðir í deildinni.
Tók við sem þjálfari ÍA í júní í fyrra.

Tók við sem þjálfari ÍA í júní í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Mætir Þór í fyrsta sinn í mótsleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mætir Þór í fyrsta sinn í mótsleik
Canon

Mynd: Rúnar Haukur Ingimarsson

Mætir Þór í fyrsta sinn í mótsleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mætir Þór í fyrsta sinn í mótsleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mætir Þór í fyrsta sinn í mótsleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mætir Þór í fyrsta sinn í mótsleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.