Fotbolti.net
15.06.17 - 22:45
Elvar Geir Magnússon

Ragnar Bragi: Sammála Rúnari varðandi dómgæsluna

Auglýsing
Ragnar Bragi var hetja Víkinga.

Ragnar Bragi var hetja Víkinga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ragnar Bragi Sveinsson skoraði sigurmark Víkinga þegar þeir unnu afar góðan sigur gegn Stjörnunni í Garðabænum í kvöld. Ragnar ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn og telur að niðurstaðan hafi verið sanngjörn.
„Mér fannst við betri þangað til við skoruðum og við vorum mestmegnis með yfirhöndina í seinni hálfleik. En Stjörnumenn eru gríðarlega hættulegir í föstum leikatriðum svo við þurftum að vera vakandi,\" segir Ragnar Bragi.

Helsta vopn Stjörnunnar ásamt föstum leikatriðum hefur verið samvinna Jósefs Kristins og Hilmars Árna á vinstri vængnum.

„Við fórum vel yfir það að loka vinstri vængnum og það gekk glimrandi vel.\"

Rúnari Páli þjálfari Stjörnunnar fannst dómararnir ekki eiga góðan dag.

„Ég er bara alveg sammála honum. Mér fannst hann (Ívar Orri) ekki eiga góðan leik. Auðvitað eru þeir svekktari með það enda tap þeir. Ég er ekki að pirra mig á dómgæslunni núna,\" segir Ragnar Bragi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.