Fotbolti.net
15.07.17 - 16:43
Eysteinn Þorri Björgvinsson

Jói Kalli: Það verður engin umferðarmiðstöð í Kórnum í glugganum

Auglýsing
Jói Kalli: Það verður engin umferðarmiðstöð í Kórnum í glugganum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Jóhannes Karl þjálfari HK-inga var að vonum sáttur eftir 2-3 sigur sinna manna á Frömurum í Laugardalnum í dag, HK-ingar byrjuðu leikinn frábærlega en misstu aðeins dampinn eftir því sem leið á leikinn. Brynjar Jónasson skoraði sigurmark HK-inga þegar var komið fram í uppbótartíma í seinni hálfleik. \"Það er ekki annað hægt að segja að þetta sé mjög sætt.\"

\" Ég er mjög sáttur við vinnuframlag minna manna, skipulagið okkar virkaði vel og við náðum að pressa Framarana vel.\"

HK-ingar voru mun betri aðilinn í fyrri hálfleik og sköpuðu sér mikið af færum. \"Við vorum með mikla yfirburði í fyrri hálfleik, við hefðum átt að skora 2 til 3 mörk, við hefðum átt að vera búnir að klára leikinn þar.\"

Félagsskiptaglugginn opnaði í dag og HK-ingar sóttu Hörð Inga leikmann FH í vikunni, Jói Kalli býst við að þeir styrki sig enn frekar. \"Við erum bara að skoða, erum nú þegar búnir að styrkja okkur, við fengum Hörð Inga frá FH en það verður enginn umferðarmiðstöð í Kórnum\"

Viðtalið má sjá í heild hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.